Forvarnasamtök síðan 1958!

ÍUT var stofnað sumardaginn fyrsta 24. apríl 1958. ÍUT eru sjálfstætt starfandi félags- og forvarnasamtök sem starfa að útbreyðslu hugmynda um vímulausan lífsstíl ungs fólks með ýmsum hætti. Samtökin er aðili að alþjóðahreyfingum um vímulausan lífsstíl bæði innan Evrópu og utan.

Undanfarin misseri hafa samtökin unnið að forvarnaverkefnum undir yfirskriftinni ÍUT - ungt fólk án vímuefna.