Lög ÍUT

I. KAFLI    MARKMIР

1. grein 
ÍUT - forvarnasamtök, í lögum þessum kölluð samtökin, eru samtök fólks sem vill vinna að samfélagi með vímuefnalausa menningu, laus við stríðsótta og fjárhagslegt öryggisleysi. Samfélagi sem grundvallast á gagnkvæmu trausti og virðingu þegnanna. 

2. grein 
Heimili samtakanna er í Reykjavík og er varnarþing þess þar.

II. KAFLI    LEIÐIR 
3. grein 
a) Markmiðum sínum vilja samtökin ná með eftirgreindum hætti: vinna gegn neyslu vímuefna með því að koma á framfæri staðreyndum um skaðsemi þeirra fyrir einstakling og samfélag, og hvetja til lífshátta án vímuefna. 
b) Vinna að friðsamlegri sambúð og bræðralagi milli einstaklinga, sem og þjóða, með því að stuðla að kynum ólíkra hópa og sjónarmiða manna.  Vinna gegn hvers konar hernaðaraðgerðum og hvetja til og benda á friðsamlegar lausnir á ágreiningsmálum í samskiptum manna. 
c) Virkja íslenskan almenning, þá sérstaklega ungt fólk, til þátttöku í félagsstarfi innan ÍUT.  

III. KAFLI    AÐILD 
4. grein 
RÉTT TIL INNGÖNGU Í SAMTÖKIN HAFA: 
a) ÍUT-félög og önnur félög sem sótt hafa um aðild að samtökunum 
b) Einstaklingar sem náð hafa 14 ára aldri og gangast undir heit samtakanna og viðurkenna lög þess og markmið. Stjórn ÍUT tekur ákvörðun um aðildarumsóknir einstaklinga.  

5. grein    AÐ VERA FÉLAGI Í ÍUT 
Þeir sem gerast félagar í ÍUT gefa út eftirfarandi yfirlýsingu með félagsaðild sinni: 
- Á meðan ég er skráður félagi í ÍUT neyti ég engra vímuefna, hvaða nafni sem þau nefnast og bý hvorki til, sel, veiti, né læt veita öðrum slík efni til neyslu. 
- Ég held því fram að allir menn séu jafnir án tillits til kynferðis, fjárhags, þjóðfélagsstöðu, trúarskoðana, stjórnmálaskoðana, hörundslitar og kynþáttar. 
- Ég viðurkenni lög, þar með talið stefnuskrá ÍUT og vil efla hag samtakanna eftir megni. 

Félag telst ekki lengur aðili að samtökunum: 
a) Ákveði ársþing ÍUT það með 3/4 hlutum greiddra atkvæða. 
b) Ákveði aðalfundur viðkomandi félags það og tilkynni stjórn samtakanna þá ákvörðun skriflega. 
c) Skuldi félag árgjald ÍUT lengur en sjö ár. 

Einstaklingur telst ekki lengur aðili að samtökunum: 
a) Byrji að nota vímuefni (áfengi  eða önnur efni). 
b) Greiði ekki árgjald  lengur en í fimm  ár. 
c) Segi sig skriflega úr samtökunum. 

Stjórn ÍUT fjallar um gildingu þessar greinar hverju sinni og ákveðjur hvenær greinin á við og hvenær ekki. 

7. grein   ÁRGJALD 
Ársgjald (félaga/einstkalinga) til samtakanna er ákveðið á ársþingi ÍUT.  

IV. KAFLI    SKIPULAG 
8. grein     STJÓRN ÍUT 
Stjórn samtakanna skal kosin á ársþingi til tveggja ára í senn.  Skal hún skipuð 7 mönnum; formanni, varaformanni og 5 meðstjórnendum. Á ársþingi skal einnig kjósa þrjá varamenn í stjórn hvert ár.  Á Ársþingi skal kosið til formanns og 2ja meðstjórnenda annað hvert ár og annað hvert ár á móti um varaformann og 3 meðstjórnendur. Kosning skal vera leynileg sé þess óskað. Allir fullgildir félagsmenn í ÍUT hafa kjörgengi til stjórnarsetu. Stjórn ÍUT skiptir að öðru leiti með sér verkum.  

9. grein    VERKSVIÐ STJÓRNAR ÍUT 
Stjórnarfundi skal halda að jafnaði tvisvar sinnum á ári. Stjórnarfundir eru lögmætir ef fjórir stjórnarmenn mæta. Stjórnin skal sjá um að starfsemi samtakanna sé í samræmi við lög þess og ákvarðanir ársþings.  Stjórnin fjallar um þau mál er starfsnefndir hafa með höndum og afgreiðir þau. Ákvarðanataka í meiri háttar málum er í höndum stjórnarinnar.  Stjórninni er heimilt að ráða sér starfsmenn. 

10. grein   FRAMKVÆMDASTJÓRN ÍUT 
Um daglega stjórnun, rekstur ÍUT og eftirlit með verkefnum sér framkvæmdastjórn ÍUT. Skal hún skipuð til eins árs 3 mönnum úr stjórn ÍUT: formanni, varaformanni og gjaldkeri.  Framkvæmdastjórn fundar að jafnaði einu sinni í mánuði og eru fundir lögmætir ef tveir stjórnarmenn mæta. Stjórninni er heimilt að ráða sér starfsmenn.  

11. grein    VERKSVIРFRAMKVÆMDASTJÓRNAR ÍUT 
Framkvæmdastjórn annast öll dagleg samskipti ÍUT við innlenda og erlenda aðila, annast fjármál samtakanna, hefur frumkvæði að tekjuöflun og skipuleggur fjáröflunarleiðir, hefur umsjón með fræðslu og upplýsingastarfsemi samtakanna, vinnur að undirbúningi nýrra verkefna og öflun nýrra félaga, fylgist með starfsemi klúbba og ÍUT-félaga og annast útgáfustarfsemi og aðra upplýsingamiðlun á vegum ÍUT. 

12. grein   STARFSNEFNDIR 
Stjórn ÍUT skipar fólk í starfsnefndir ÍUT sem starfa á milli ársþinga: 
UNGMENNARÁÐ ÍUT:  Skipað 5 manns, 16 - 30 ára, sem skipta með sér verkum. Formaður kjörinn á Ársþingi. Hefur umsjón með æskulýðs- og klúbbastarfi ÍUT, félagsmiðstöð samtakanna og samskiptum við önnur æskulýðssamtök innanlands og utan, í samráði við stjórn ÍUT. 
FAGRÁÐ ÍUT:  Skipað þrem einstaklingum sem annast fræðslu og upplýsingamál ÍUT um ávana og fíkniefni í samráði við Fræðslumiðstöð í fíknivörnum (FRÆ) og stjórn ÍUT. 
TENGSLARÁÐ:  Skipað þrem einstaklingum sem annast verkefni og vinnu með foreldrum og samtökum þeirra, fjölmiðlum og fulltrúum annarra samtaka. Annast vefsíður samtakanna. 

13. grein    ÁRSÞING 
A.  Ársþing samtakanna skal haldið á eins árs fresti á tímabilinu febrúar - apríl og boðað skriflega með minnst mánaðar fyrirvara. Þar skal þetta tekið fyrir: 
1. Starfsskýrsla og reikningar. 
2. Meðferð mála sem borist hafa frá einstökum félagsheildum og/eða haf verið undirbúin af einstökum félagsmönnum eða stjórn samtakanna. 
3. Stjórnarkjör: 
a) kosning formanns (annað hvert ár) 
b) kosning varaformanns (annað hvert ár) 
c) kosning 5 meðstjórnenda (3 annað hvert ár á móti 2 hitt árið) 
d) kosning þriggja varamanna (hverju ári) 
4. Kjör tveggja endurskoðenda  (hverju ári) 
5. Kjör í Framkvæmdastjórn ÍUT 
6. Kjör í Ungmennaráð, Fagráð og Tengslaráð 

B. Allir fullgildir félagsmenn ÍUT hafa rétt til þingsetu og kjörgengis (verið á félagsskrá minnst 3 mán. fyrir þing) og skal miðað við félagaskrá ÍUT minnst 2 dögum fyrir Ársþing. 

C. Allir þingfulltrúar hafa málfrelsi og tillögurét á Ársþingi ÍUT. 

D.  Tillögur sem óskast ræddar á ársþingi sem sérstakt dagskrármál skulu sendar stjórn samtakanna einum mánuði fyrir þingið, ella þarf ekki að taka þær til greina sem slíkar. Við atkvæðagreiðslu ræður einfaldur meirihluti nema annað sé tekið fram í lögum þessum. 

14. grein    AUKAÞING 
Stjórn samtakanna er skylt að boða til aukaþings ef a.m.k. 25 félagsmenn æskja þess skriflega.  skal til þingsins boðað skriflega með a.m.k. tveggja vikna fyrirvara og tilefni þingsins skilgreint. 

15. grein    REIKNISHALD OG ENDURSKOÐUN 
Tveir endurskoðendur skulu yfirlíta reikningshald samtakanna og skal reiningsárið vera milli árþinga, en þó eigi lengur en 15 mánuðir. Reikningar skulu kominir til endurskoðenda minnst 1 viku fyrir árþing og afhentir af þeim til stjórnar samtakanna minnst þremur dögum fyrir ársþing. 

16. grein    FUNDARSKÖP 
Fylgja skal almennum fundasköpum á öllum fundum innan samtakanna, nema annað sé samþykkt í einstökum tilfellum. 

17. grein    MERKI SAMTAKANNA 
a) Merki samtakanna eru starfirnir ÍUT í letrinu Helvetika Black, svartir starfir á hvítum grunni. 
b)  Kjörorð  samtakanna; ungt fók án vímuefna . 
c)  Vímulaus lífstíll er alþjóðlegt markmið fjölmargra félagshreyfinga og tilheyrir ÍUT þannig alþjóðlegum forvarnasamtökum með sömu markmið.  

18. grein   LAGABREYTINGAR 
Lagabreytingar geta aðeins orðið á ársþingi með 3/4 hlutum atkvæða viðstaddra fulltrúa. 

19. grein   SLIT SAMTAKANNA 
Tillögu um að leysa upp samtökin skal taka fyrir á aukaþingi.  Þingið telst því aðeins lögmætt að a.m.k. 3/4 hlutar skráðra félagsmanna séu til staðar og samþykkt þeirra standi á henni.  Verði samtökin leyst upp samkvæmt ákvörðun aukaþings skal farið með eigur þess samkvæmt ákvörðun þess sama þings.  Eignir samtakanna skulu ekki renna til félagsmanna.  Stjórn samtakanna skal fyrir ákveðinn tíma sjá um að framkvæma þær ráðstafanir sem aukaþingið samþykkir.